well I'm not a therapist....
07.10.2008 19:02:42 / irmelin79

Klukkuð

Bæði Rakel og Inga Sigga klukkuðu mig svo:

1. 4 Störf sem ég hef unnið við:
Unglingavinnan á Laugarbakka, aðhlynningi á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga, sem dagmamma og leikskólakennari.

2. 4 Bíómyndir sem ég held uppá.
National Lampoon's christmas vacation, Dirty dancing, 10 things I hate about you (Ledger er bara svo sætur í þesari mynd ;) og Annie.

3. 4 Staðir sem ég hef búið á.
Laugarbakki, Akranes og Grundarfjörður (veit ekki hver 4 staðurinn verður, ef hann verður einhver)

4. 4 bestu ssjónvarpsþættirnir.
Friends, Grey’s Anatomy, Men in trees, Private practis

5. 4 matarkyns sem ég held uppá.
Alls konar kjúklingaréttir, hamborgarhryggur, kjöt í karrý a la mamma og humarsúpan hennar Önnu. 

6. 4 Bækur sem ég held uppá.
Bækurnar hans Arnaldar, bækurnar hans Ævars Arnar, bækur Michael Connelly's (get ekki gert upp á milli bóka :$)


7. 4 bloggarar sem ég klukkaði eru
Engir það er hvort sem er búið að klukka þá :haha:


Annars er ágætt að frétta héðan, nóg að gera í skólanum já og vinnunni líka.  Eins og það sé ekki nóg þá er ég líka í árshátíðarnefnd Grundarfjarðarbæjar svo að það er meira en nóg að gera.   

Smá punktar frá sumrinu :
    * Fékk sem sagt inn í Háskóla Íslands, Menntavísindasvið, er að byrja þar í framhaldsnámi í sérkennslu.  

    * Hélt upp á 70 ára afmælið hans pabba með nánustu fjölskyldumeðlimum í sumarbústað í Munaðarnesi, komum honum skemmtilega á óvart og skemmtum okkur konunglega....sumir enduðu óvart í heita pottinum....nefni engin nöfn :lol:

    * Fór á Whitesnake tónleikana...ekkert smá gaman, hef ekki farið á svona tónleika síðan Skunk Anansie voru hérna um árið...Rakel man eftir því :$

    * Svo skrapp ég í eins og eina sólarlandaferð til Rhodos...bara geggjað.  Fór með Svanhildi, Sigga og börnum.  Vorum þar í brakandi sól og blíðu í tvær vikur, 35-39 stiga hiti (fengum reyndar aðeins að kynnast 44 gráðum einn daginn...það var rosalegt :^) ). Upplifðum meðal annars jarðskjálfta upp á 6,7...svona eftir á þá var það skemmtileg upplifun en get ekki sagt að okkur hafi fundist það meðan hann gekk yfir :$ Sem betur fer sluppu allir ómeiddir enda var þetta nokkurs konar bylgja sem gekk yfir eyjuna en ekki högg.

    * Fékk Írisi Emblu í láni í tvær vikur þegar ég kom heim :) það var bara gaman, á eftir að fá hana oftar í láni.  Vorum hérna fyrir vestan og héldum bæjarhátíðina hátíðlega ásamt ca. 4000 manns,  fórum svo til ömmu og afa á Laugarbakka og vorum þar í nokkra daga...í góðu yfirlæti.

    * Svo tók "grár" hversdagsleikinn við... nei, nei... er bara búin að eyða haustinu í vinnunni og heima við lærdóm en svona verða næstu 2-3 árin ef allt gengur upp :) í framhaldi af því verður svo ráðist í baráttu fyrir meiri launahækkun eftir að mastersnámi er lokið...heldur en er í boði núna. Þá verður fjármálakerfi Íslands vonandi risið upp úr þessu gili sem það situr fast í núna :$

Er farin að lesa....

Irmelin


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 20:44:32 / irmelin79

Þorrablót, þorrablót !!!

Jæja þá er tími þorrablótanna runninn upp.....sit samt hérna heima með tvö fósturbörn á meðan foreldrar þeirra háma í sig þorramatinn og blóta þorranum ásamt góðum hópi Grundfirðinga :) Hef nefninlega ákveðið að skella mér norður á þorrablót næstu helgi (laun leikskólakennara dekka ekki tvö blót....tvær helgar í röð.....:$ ) svo að ég bauðst til að hafa tvíburana hennar Svanhildar vinkonu svo að þau hjónin gætu farið og skemmt sér :D  Svo að ég sit hér heima á laugardagskvöldi og horfi með öðru auganu á Laugardagslögin....:$  Skrapp í dag í sólarpönnukökur til Svanhildar og Sigga....sólin sást semsagt hérna í bænum í fyrsta skipti í einhvern tíma...á fimmtudaginn.  Hér er allt á kafi í snjó, það er varla hægt að þverfóta fyrir snjósköflum eða snjómoskturstækjum....talandi um þau ferlíki...varð ferlega örg og pirruð þegar ég fór út í dag til að skafa af bílnum...sá ég þá ekki þessar líka fínu rispur á spoilernum .....og þær eru ekki eftir mig :evil: Veit að bílinn minn er orðinn ryðgaður og lúinn ... já og dældaður en finnst alveg óþarfi að bæta við rispum og láta mann ekki vita.  Nefndi þetta við Svanhildi þegar ég kom þangað í dag og þá sagðist hún hafa séð einhverja á gröfum og vörubílum á framhaldsskólaplaninu (þar sem bílinn minn hefur staðið að undanförnu...sökum snjóa) að hreinsa snjó og ekkert í rólegheitum.  Hvað varð um þá kurteisi að hafa samband við bíleigendur og biðja þá um að færa bílana ef þeir eru fyrir....? :evil:

En að öðru...ég er á leiðinni til Rhodos í byrjun júlí :)  Sólbað á ströndinni, flatmagað á sundlaugarbakkanum og drukknir grískir drykkir í tvær vikur.  Er að fara með Svanhildi og Sigga og börnum....þó það sé bara nýkominn febrúar þá er ég strax farin að telja niður :lol: byrja reyndar á því að fara með Önnu og Kjartani á Whitesnake tónleikana í júní og svo er það bara Rhodos....:haha:

Annars voru Vallý, Bjarni og Íris Embla hjá mér í heimsókn í vikunni, komu á miðvikudaginn og stoppuðu í tvær nætur...ákvað að taka mér bara frí í vinnunni á meðan svo að helgarfríið mitt er bara rétt hálfnað :) Skelltum okkur í sund í Stykkishólm þar sem Íris Embla sýndi mér allt sem hún er búin að læra í sundinu....orðin svaka dugleg.  Svo ætla ég að bruna í bæinn eftir þorrblótið heima og passa hana á meðan foreldrarnir skella sér á árshátíð hjá RL-búðinni.  Ragna sys ætlar að hýsa okkur frænkurnar á meðan.

 Læt þetta duga í bili, þar til næst

Irmelin


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 23:11:47 / irmelin79

Alma Dís :)

...heitir nýjasti fjölskyldumeðlimurinn í Fagurhólstúninu (Grf)...Anna og Kjartan voru sem sagt að láta skíra dömuna sína...sem fékk þetta fallega nafn....og byrjar að sjálfsögðu á A!!!  Nú er eins gott að dusta rykið af barnabæna kunnáttunni þar sem guðdæturnar eru orðnar 2....ég fékk sem sagt þann heiður að vera skírnarvottur ásamt systur hans Kjartans :D  Athöfnin var mjög notaleg, Arna Sigrún sat á gólfinu við skírnarfontinn og las upp úr sálmabókinni á meðan systir hennar var ausin vatni.  Veislan var æðisleg....fullt af kökum og brauðréttum, eins gott að Gamlársdagur er ekki á morgun....það er séns að jafna sig á þessu áti, fyrir það næsta :S

Áramótunum ætlum við að eyða saman, ég og "fjölskyldan", Heiða Lára og börn og Sigga Lilja og fjölskylda...telur líklega í kringum 13-15 manns :) vorum öll saman í fyrra líka og gekk svona líka vel.  Finnst hálf undarlegt að hugsa til þess að mamma og pabbi verði líklega ein um áramótin....Gulli frændi var hjá þeim í fyrra en fer líklega á Skagann þessi áramótin....nema að veðrið stríði honum eitthvað. En mamma á víst að vinna svo að ekki geta þau komið hingað...:S

segi þetta gott í bili, aldrei að vita nema það verði skellt inn eins og einni færslu í viðbót á árinu....who knowa ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 12:40:43 / irmelin79

Gleðileg jól

Vil byrja á því að óska ykkur öllum (sem villast hingað inn) gleðilegra jóla, vonandi áttu þið ánægjulega kvöldstund í gærkvöldi í faðmi fjölskyldunnar.  Við vorum öll saman hérna heima á Laugarbakka (ég, Vallý, Bjarni, Íris Embla og Gulli frændi), átum yfir okkur af svínakjöti og meðlæti áður en ráðist var á pakkaflóðið undir jólatrénu....Íris Embla átti þar meiri hlutann :P  Allir voru ánægðir með sitt, ég fékk þessa líka fínu sæng og rúmföt frá mömmu, pabba, Vallý og Bjarna.....hún er 200x 220 cm.....ég get vafið henni 3 eða 4x utan um mig :D  Skellti rúmfötunum strax í þvottavélina og þurrkarann. Íris Embla gaf mér svo náttbuxur og ég sjálf gaf mér jólabókina....svo að ég var vel sett fyrir jólanóttina.   Reyndar fengu allir nema Gulli frændi náttbuxur í jólagjöf.  Svo skelltum við okkur í messu, alveg merkilegt hvað henni frænku minni finnst gott að sofa í krikju....nei annars það er ekkert skrýtið....hún er eins og afi sinn....þau hefðu átt að fá að sitja saman í gærkvöldi og sofa saman :)  hún aðeins hjálpaði Þorra meðhjálpara með inngangsbænina og lagði sig svo.  Hún eftir lét svo öðrum litlum að hjálpa sr. Guðna með Faðir vorið.   

En aftur að jólagjöfunum.....Rakel kom mér skemmtilega á óvart með bókagjöf....Vallý var þess fullviss að þetta væri matreiðslubók....einhver af Hagkaupsbókunum....mér datt það í hug líka en þó ekki....:S þegar pappírinn hafði verið rifinn utan af þá kom í ljós bók um Friends....hlakka mikið til að veifa henni framan í Kjartan þegar ég kem heim aftur á föstudagnn.  Fékk svo þessi fínu rauðvínsglös frá "fjölskyldunni minni" fyrir vestan, svo fékk ég handklæði, bók og fleira smotterí.  Ástarþakkir fyrir mig allir saman :)

 Ætla að láta þetta nægja í bili, er að hugsa um að reka hann föður minn undan sænginni minni og leggjast þar sjálf með tölvuna og horfa á House eða eitthvað skemmtilegra en er í sjónvarpinu :s Vallý og co fóru til Dalvíkur til að hitta familíuna þar og sækja Regínu og Ísar en ætla svo að koma aftur í kvöld.... Íris Embla er búin að sofa hjá Frænku undan farnar nætur svo ég veit ekki hvernig ég á að fara að þegar ég er komin vestur....(fá mér Baby born segir Vallý ) hehe.

 Jólakveðja, Irmelin


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 23:00:04 / irmelin79

Pabbinn!!!!!!!!!

Var að koma af leiksýningu í Samkomuhúsinu....þar var verið að sýna einleikinn Pabbinn... með Bjarna Hauki Þórssyni.....http://www.pabbinn.is  Að mínu mati var þetta hverrar krónu virði. Anna vinkona fór með mér....skildi PABBANN eftir heima með ÖLL 4 börnin (þar á meðal litluna sem er ekki mánaðar gömul)...og skemmti sér mjög vel.  Ég þjáðist reydar af smá valkvíða í dag....hvort ég ætti að skippa sýningunni og fara í jógað (sem ég by the way er búin að borga fyrir) eða skippa jóganu og hlæja í eins og tvo klukkutíma......á endanum tók ég svo þá ákvörðun að fara frekar í jógað.  Eftir þessa erfiðu ákvörðun þá hringdi jógakennarinn til að láta mig vita að tíminn félli niður ....maðurinn hennar fékk smá viðvörun um helgina og fór í hjartaþræðingu í fyrradag og þau voru bara enn að jafna sig á öllu þessu....:$ svo að ég skellti mér bara á sýninguna og sé sko ekki eftir því :)  Höfundurinn hefur greinilega velt þessu vel og lengi fyrir sér og setti efnið skemmtilega fram.....þeir sem hafa séð Hellisbúann vita hvað ég á við.

En annars er lítið meira að frétta, var að fá boð i skírn í Hafnarfirði, 2. desember n.k. en þá fær litla frænka Siguþórsdóttir nafnið sitt....alveg nóg að gera í þessum bransa því að svo á eftir að skíra hjá Önnu og Kjartani :) sé það að ég verð að fara að herða mig í saumaskapnum....á eftir að klára myndina hennar Írisar Emblu (það er svo gaman að skrifa og segja nafnið hennar) og svo þessar tvær í viðbót.  Það verður líklega nóg að gera um mánaðarmótin....á tíma hjá gigtarlækninum þann 30., jólafundur hjá Volare....http:www.volare.is þann 1. og svo skírnin... fyrir utan jólagjafaleiðangur :)

Jæja, það er best að láta þetta nægja í bili....

Irmelin

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 20:40:33 / irmelin79

Íris Embla :)

Jæja þá er daman komin með nafn...Íris Embla heitir hún :)  Dagurinn gekk eins og í sögu, athöfnin var alveg gullfalleg, Valdi frændi söng þrjá sálma, Íris Embla svaf vært á meðan á öllu þessu stóð.  Það var vel mætt af ættingjum og vinum til að samfagna með litlu fjölskyldunni og okkur hinum.  Nú þarf ég að standa mig sem guðmóðir dömunnar, því fylgja víst nokkrar skyldur (því miður gera skírnarvottar ekki mjög mikið úr sínu hlutverki í dag....en ætli maður reyni ekki að breyta því viðhorfi ). 

 Læt þetta duga í bili,

Irmelin


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 00:45:57 / irmelin79

Allt að gerast ;)

Jæja, þá er allt að bresta á....daman hennar Vallýjar fær nafnið sitt á morgun....:D Erum búin að vera á fullu að baka og útbúa brauðrétti í dag já og skreyta salinn.  Verð að viðurkenna að ég er orðin nokkuð spennt að heyra hvaða nafn þau hafa valið handa henni....hef ekki eina einustu hugmynd :)  Það er von á einhverjum slatta af ættingjum og vinum á morgun svo að við vonum að veðrið haldist gott og færðin líka. 

 Nú er verið að leggja loka hönd á fatnað heimilisfólksins, klára að sauma 1 stk. buxur, þvo skyrtur og fleira í þeim dúr.

Ætla ekki að hafa þetta lengra núna, þarf að finna textann sem ég á að lesa við skírnina á morgun....það er hefð hjá sr. Guðna að skírnarvottarnir lesi ritningarversin...svo að það er best að lesa þetta aðeins betur yfir svo að ég ruglist sem allra minnst :S

 Skelli kannski inn smá færslu annað kvöld...svona fyrir þessa örfáu sem kíkja hérna inn :)

 Irmelin


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 17:36:41 / irmelin79

Update!!!!!

Síðan ég kom heim frá Köben þá:

* er ég búin að skreppa vestur á Tálknafjörð í fermingarveislu hjá henni Söndru Lind, átti þar alveg æðislega helgi með systrum mínum og þeirra fjölskyldum. Fengum ágætis veður og nutum þess að vera saman.

* fór ég með Rakel vinkonu í Guiding Light partý á Hólmavík þar sem Stína vinkona var að halda upp á 30. afmælið sitt ásamt Hafrúnu vinkonu sinni.

* átti ég gott sumarfrí sem fór í að slappa af og njóta þess að vera til. Ég ferðaðist ekki mjög mikið en skrapp norður í sveitasæluna hjá mömmu og pabba. Hitti Vallý og co. notuðum eina góða helgi í að hreinsa til á háloftinu hjá gamla settinu.  Fundum fullt af gömlum leikföngum frá því að við vorum ungar og tala nú ekki um fötin af okkur systrum sem Vallý tók svo með sér á Akureyri fyrir krílið sitt.

* fór ég á námsstefnu í Kennaraháskólanum í ágúst með Kollu og Svanhildi þar sem fjallað var um ýmislegt sem við kemur sérkennslu innan leikskólans og yngsta stigs í grunnskóla.  Þetta var mjög skemmtileg námsstefna.

* varð ég móðursystir í xxx skipti þegar Vallý eignaðist prinsessuna sína 13. september sl. Ég var svo heppin að vera komin á Akureyri rétt áður en hún fæddist svo að ég fékk að máta hana alveg glænýja :D Eyddi svo helginni með litlu fjölskyldunni.

* varð ég svo ömmusystir í xxx skipti þegar Sigurþór frændi eignaðist sína prinsessu 18. október.  Hef enn ekki afrekað það að sjá hana með "augunum" en það stendur allt til bóta :D

* fór ég á árshátíð hjá Grundarfjarðarbæ í október, góður matur, frábær veislustjóri (Björgvin Frans) og Sixties á balli á eftir.....dansaði næstum af mér tærnar :haha:

Þetta eru svona helstu punktarnir sem hafa gerst í kringum mig undanfarið.  Framundan er svo skírnin hennar litlu frænku um næstu helgi, en athöfnin fer fram í Melstaðarkirkju og svo verða kaffiveitingar í Ásbyrgi.  Svo að ég er að fara norður á fimmtudaginn eftir vinnu til að dekra við hana frænku mína og undirbúa veisluna með Vallý og mömmu.  Er farin að telja niður dagana þar til ég get knúsað þær mæðgur enda ekkert smá langt síðan ég sá þær síðast.  

Að öðru leyti er nóg um að vera,  alltaf nóg að gera í starfi deildarstjóra og virðist ekki ætla að verða lát á þar.  En læt þetta nægja í bili, ætla að skella í eina þvottavél og finna léttan kvöldmat áður en jógatíminn hefst.

Irmelín


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 21:56:59 / irmelin79

Hjem fra Köben!!!!

Jæja þá er maður komin á klakann aftur, fimm dagar í Köben eru ekki mjög lengi að líða.  Ferðin tókst framar öllum vonum, við komumst á alla fjóra leikskólana sem við ætluðum að skoða en að öllum ólöstuðum þá stóð Kristjaníu-leikskólinn uppúr.  Það var alveg magnað að labba þarna í gegn.  Lyktin sem lá í loftinu, litirnir,  húsin og fólkið sem var þarna. Þegar við vorum búnar að skoða leikskólann þá gengum við að eins um  en því miður þá máttum við ekki taka neinar myndir þarna L hefði sko alveg getað tekið heilan helling.    Það var líka mjög gaman að skoða leikskólana og vöggustofurnar í Dragør en veðrið var ekki alveg með okkur (ekta íslenskt veðurfar).  Ef veðrið hefði verið betra þá hefðum við örugglega skoðað bæinn betur eftir leikskólaheimsóknirnar en mallið kallaði meira á okkur J    Síðasti leikskólinn sem við skoðuðm var í Köben en hann býður upp á sólarhringsopnun alla daga vikunnar.  Það var líka mjög skemmtileg heimsókn (segi betur frá heimsóknunum seinna) en þegar hún var búin þá fórum við nokkrar í gegnum Ripley’s belive it or not...safnið og H.C. Andersen safnið (mæli hiklaust með því margt að skoða).  Þegar við vorum búnar að vera menningarlegar þann daginn þá fórum við aftur í mallið þar sem við komumst ekki yfir nema brota brot af því daginn áður J það gekk mun betur að skanna verslanirnar þennan daginn J   Strikið var svo rölt á laugardeginum ásamt því að kíkja aftur í Fiskitorvet áður en við skelltum okkur í Tívolí.  En þar skelltum við Sigga Dís okkur í fallturninn (engin önnur lagði í hann....hehehe) ef við hefðum haft tíma hefðu við svo skellt okkur í rússíbanann en við áttum pantað borð kl: 21 svo að við urðum að láta hann bíða.    Við fengum mjög góðan mat alla dagana en veitingastaðurinn Reef’n beef var langbestur...en þar fengum við okkur krókódíl, kengúru og emu .....umm....ummm...umm J   Ég fékk mér emu-fugl í forrétt, kengúru í aðalrétt og eftirrétt sem kallast Death by chocolate J   Kengúran var svakalega góð, mæli eindregið með því að þið smakkið svoleiðis kjöt ef þvið eigið kost á því. Fékk svo að smakka smá krókódílakjöt hjá hinum og það var mjög spes en alvega svakalega gott....áferðin er eins og kjúklingabringa en bragðið er eins og af skötusel.   

Í gær gerðumst við svo voðalega menningarlegar og fórum í skipulagða gönguferð um gömlu Kaupmannahöfn (ekki það að við vorum ekki búnar að ganga nóg....hehehe) með leiðsögn. Þarna vorum við á Íslendingaslóðum, sáum hvar Fjölinsmenn bjuggu og Hallgrímur Pétursson, heyrðum um brunann og hinar ýmsu lýsingar á samfélaginum sem var þarna fyrir mörg hundruð árum.....SAG103.....hehehe J   Þetta var mjög skemmtileg gönguferð og ég mæli líka með henni, þetta er róleg tveggja klukkutíma ganga á merkum stað.

  En jæja, læt þetta nægja í bili, fer að koma mér í rúmið fljótlega, fór að sofa klukkan fjögur í nótt og var svo mætt í vinnu klukkan níu í morgun.    

Þegar við verðum búnar að gera samantekt á ferðinni og heimsóknunum þá get ég sett hana hérna inn ef einhver vill kíkja á hana.


Irmelin

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 21:55:28 / irmelin79

Hjem fra Köben :)

Jæja þá er maður komin á klakann aftur, fimm dagar í Köben eru ekki mjög lengi að líða.  Ferðin tókst framar öllum vonum, við komumst á alla fjóra leikskólana sem við ætluðum að skoða en að öllum ólöstuðum þá stóð Kristjaníu-leikskólinn uppúr.  Það var alveg magnað að labba þarna í gegn.  Lyktin sem lá í loftinu, litirnir,  húsin og fólkið sem var þarna. Þegar við vorum búnar að skoða leikskólann þá gengum við að eins um  en því miður þá máttum við ekki taka neinar myndir þarna L hefði sko alveg getað tekið heilan helling.   Það var líka mjög gaman að skoða leikskólana og vöggustofurnar í Dragør en veðrið var ekki alveg með okkur (ekta íslenskt veðurfar).  Ef veðrið hefði verið betra þá hefðum við örugglega skoðað bæinn betur eftir leikskólaheimsóknirnar en mallið kallaði meira á okkur J    Síðasti leikskólinn sem við skoðuðm var í Köben en hann býður upp á sólarhringsopnun alla daga vikunnar.  Það var líka mjög skemmtileg heimsókn (segi betur frá heimsóknunum seinna) en þegar hún var búin þá fórum við nokkrar í gegnum Ripley’s belive it or not...safnið og H.C. Andersen safnið (mæli hiklaust með því margt að skoða).  Þegar við vorum búnar að vera menningarlegar þann daginn þá fórum við aftur í mallið þar sem við komumst ekki yfir nema brota brot af því daginn áður J það gekk mun betur að skanna verslanirnar þennan daginn J   Strikið var svo rölt á laugardeginum ásamt því að kíkja aftur í Fiskitorvet áður en við skelltum okkur í Tívolí.  En þar skelltum við Sigga Dís okkur í fallturninn (engin önnur lagði í hann....hehehe) ef við hefðum haft tíma hefðu við svo skellt okkur í rússíbanann en við áttum pantað borð kl: 21 svo að við urðum að láta hann bíða.   Við fengum mjög góðan mat alla dagana en veitingastaðurinn Reef’n beef var langbestur...en þar fengum við okkur krókódíl, kengúru og emu .....umm....ummm...umm J   Ég fékk mér emu-fugl í forrétt, kengúru í aðalrétt og eftirrétt sem kallast Death by chocolate J   Kengúran var svakalega góð, mæli eindregið með því að þið smakkið svoleiðis kjöt ef þvið eigið kost á því. Fékk svo að smakka smá krókódílakjöt hjá hinum og það var mjög spes en alvega svakalega gott....áferðin er eins og kjúklingabringa en bragðið er eins og af skötusel.  Í gær gerðumst við svo voðalega menningarlegar og fórum í skipulagða gönguferð um gömlu Kaupmannahöfn (ekki það að við vorum ekki búnar að ganga nóg....hehehe) með leiðsögn. Þarna vorum við á Íslendingaslóðum, sáum hvar Fjölinsmenn bjuggu og Hallgrímur Pétursson, heyrðum um brunann og hinar ýmsu lýsingar á samfélaginum sem var þarna fyrir mörg hundruð árum.....SAG103.....hehehe J   Þetta var mjög skemmtileg gönguferð og ég mæli líka með henni, þetta er róleg tveggja klukkutíma ganga á merkum stað.  En jæja, læt þetta nægja í bili, fer að koma mér í rúmið fljótlega, fór að sofa klukkan fjögur í nótt og var svo mætt í vinnu klukkan níu í morgun.   Þegar við verðum búnar að gera samantekt á ferðinni og heimsóknunum þá get ég sett hana hérna inn ef einhver vill kíkja á hana.

Irmelin

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 21:21:22 / irmelin79

Komin í fullorðinna manna tölu :)

Jæja þá eru páskarnir búnir, skrapp norður á Akureyri á Skírdag og eyddi helginni með Vallý og Bjarna.  Eyddum helginni í að borða og liggja yfir sjónvarpinu,  skruppum reyndar líka í bíltúr inni í Eyjafjörð á föstudaginn með krökkunum hans Bjarna.  Fengum okkur ís í vín og fórum í Jólahúsið (átti vel við á föstudaginn langa ekki satt).  Fórum í bíó á fimmtudagskvöldið og sáum Wild Hogs...mæli eindregið með henni,  frábær skemmtun J   

Kom við heima á Laugarbakka á leiðinni vestur í dag og fékk steiktan fisk a la mamma, ágætt eftir allt kjötátið um helgina.  Hélt svo áfram vestur, leiðinda veður, slagveðursrignin og  rok L og ég sem var að vona að þeim tíma væri að ljúka.  Þegar ég svo var alveg að komast að Vegamótum haldið þið að ég hafi ekki verið stöðvuð af löggunni.....á 106 !!!!! Í fyrsta skipti eftir tíu ár með bílpróf.....þannig að nú er ég komin í fullorðinna manna tölu eins og einhver sagði einu sinni J Það sem mér fannst eiginlega verst  var að önnur löggan sem var í bílnum er snyrtifræðingur hérna í Grf. og ég á tíma hjá henni á morgun í litun og plokkun....:S en ég hlæ bara að þessu...allavegana núna.  Þegar hin löggan spurði mig hvort ég vildi eitthvað tjá mig um þetta brot...var ég fljót að neita og játaði bara á mig þetta brot.....hefði kannski átt að þegja og biðja um lögfræðing...hehehe.

En hvað um það, nú styttist óðum í væntanlega Danmerkurferð okkar á Leikskólanum Sólvöllum, aðeins 9 dagar (tæplega). Set inn nánari fréttir af þeirri ferð fljótlega, ætla að leggjast upp í sófa og horfa á Lost. 

Kv, Irmelin


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 22:27:58 / irmelin79

Alveg kostulegt lið!!!

Alveg er þetta lið sem vinnur á Tryggingarstofnun Ríksisin alveg galtómt í hausnum stundum...(ekki það að ég hafi ekki vitað það fyrir) en ég gjörsamlega átti ekki til orð í dag.  Fyrir þó nokkru síðan (alllavegana þrjár vikur síðan) þá greiddi ég nokk háan reikning hjá honum Árna besta vini mínum fyrir lagfæringarnar á stellinu....sem er svo sem ekki frásögu færandi.  Ég fæ svo sendan reikninginn frá tannlæknastofunni til undirritunar og sendi hann svo áfram á Tryggingastofnun (mánudaginn 19. mars) svo hefst biðin.........í gær sendi ég mail á TR og spyr hversu langan tíma það taki nú eiginlega að endurgreiða tannréttingar....svarið var að það tæki yfirleitt ekki nema 1-2 daga, ég gæti átt von á þessu í dag (þ.e í gær) eða á morgun.  Þegar ég svo athugaði málið í dag (þriðjud.) þá var staðan á reikningnum ekkert skárri en áður.  Svo að ég hangi í símanum allan kaffitímann og hlusta á svo leiðinlega tónlist að flugurnar sem eru að lifna við hefðu dottið dauðar niður.  Þegar ég fæ svo samband þá kemur í ljós að endurgreiðslan hafði verið millifærð á reikning hjá Árna......HALLÓ.....ég svo sem gargaði ekki á blessaða konuna en spurði verulega pirruð hvernig í ósköpunum hafi staðið á því en það var eitthvað fátt um svör....hún benti mér aðeins á að hafa samband við tannlæknastofuna sem ég gerði.  Þar var bókarinn voða kammó og fannst alveg óþarfi að ég væri að tvíborga.....sagðist myndi millifæra þessa upphæð á reikning hjá mér....svo að loksins get ég farið að ganga frá þessu máli öllu saman...thank god for that :)  Varð bara aðeins að pústa hérna og minna ykkur á að tala skýrt og greinilega við þetta lið sem starfar þarna og standa fast á ykkar.....hef heyrt nokkrar sögur þar sem viðskiptavinurinn hefur haft rétt fyrir sér á endanum :) 

 Það verður spennandi að vita hvernig gengur að fá endurgreidda endajaxlatökuna síðan um daginn....hehehe

 kv, Irmelin


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 22:34:42 / irmelin79

Smá fréttir!!

Jæja kominn tími á smá fréttir héðan af nesinu.  Skrapp í eina Reykjavíkurferð snemma á föstudaginn sl. gagngert til þess að láta fjarlæga eins og eitt stk endajaxl :S  Það gekk nokk vel en ég uppskar að sjálfsögðu þessa líka fínu bólgu og smá mar....hafði á tilfinningunni að ég væri með eins og eina golfkúlu í kjaftinum J   Lét Rakel svo stjana við mig um helgina....að sjálfsögðu J   Við skelltum okkur í bíó á laugardagskvöldið...sáum Music and lyrics (http://www.imdb.com/title/tt0758766/ )  með Hugh Grant og Drew Barrymore....alveg ljómandi fín mynd, góðir mjaðmahnikkir og svona.....hehe.Svo er ég á leiðinni í bæinn aftur um næstu helgi, við Anna og Hjördís erum að fara á málþing á Hótel Sögu....spurning hvort það verður um tónlistarnám barna á aldrinum 1-6 ára eða eitthvað annað.......hmm hmmm ;)  Annars er það að frétta að ég mun verða móðursystir í haust....nánar tiltekið í september en hún litla systir mín ætlar að bæta einu frændsystkini í hópinn með hinum 10 J Það verður bara spennandi í haust að fá lítið kríli í fjölskylduna....hin eru öll orðin svo stór.Svo að nú er bara að grípa prjónana og reyna fyrir sér í ungbarnaflíkunum J Ef einhver kann skemmtileg gullkorn eða spakmæli þá endilega sendið mér línu, vantar fyrir vinnuna (þ.e. fyrir samstarfskonurnar ekki börnin....svo þau þurfa ekki að vera barnvæn...) Læt þetta nægja í biliIrmelin

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 22:00:44 / irmelin79

Úpps!

Úpps, lofaði ég ekki bloggi í gær eða fyrra dag?  Jæja hérna kemur það allavegana :)

Það er svo sem búið að vera nóg að gera undanfarið, jólin búin, komið nýtt ár og fleira skemmtilegt.  Það er alveg nóg að gera hjá okkur í vinnunni, búið að taka inn þrjú kríli (öll innan við tveggja ára), okkur finnst þau svo lítil :S en það gengur alveg ótrúlega vel.  Anna vinkona tók upp á því um helgina að flytja einu sinni enn á milli íbúða, svo að ég nappaði Örnu Sigrúnu í dag og neitaði að skila henni fyrr en á morgun ;) svo að hún sefur hin rólegasta inni í herbergi....verður vonandi bara svona róleg í nótt líka :) 

Við erum að verða nokkuð spenntar fyrir komandi heimsókn til Danaveldis, erum að verða búnar að safna okkur inn pening fyrir hótelinu líka :) (erum sem sagt búnar að bóka og borga flugið) svo að nú vantar okkur bara eyðslupeninginn.  Annars segja þeir sem vita hafa að það sé ekki svo mikið ódýrara að versla þarna úti en það skiptir ekki öllu máli. 

Við leikskólagengið ætlum að blóta þorrann saman n.k. föstudagskvöld....mér finnst ferlega svekkjandi að það skuli bera upp á sama kvöld og þorrablótið heima :$ en við því er lítið að gera....ég kann ekki við annað en að mæta á blótið okkar hérna, þar sem ég kvartaði svo yfir verðinu á blótið hjá Hjónaklúbbnum en það kostaði 5500 kr. þegar það kostar 3800 eða 3900 heima.  Svo að ég hef ákveðið að blóta með starfssystrum mínum þetta árið en næsta ár reikna ég með að fara norður....geri nefninlega ráð fyrir að mamma og pabbi verði fyrir valinu í næstu nefnd...það er nefninlega kominn tími á þau :haha:  Annars ætla ég svo að renna niðrá Skaga á laugardaginn og kíkja á hana ömmu, hún tók upp á því að veikjast illilega í vikunni, send með sjúkrabíl í bæinn í hjartaþræðingu....þetta var svolítið tvísýnt um tíma en amma er hraust kona og reif sig upp úr þessu :) Vallý, Bjarni og Jói eru að spá í að renna líka svo að ég hitti þau aðeins í leiðinni :)  

Annars þarf ég að fara að komast í bæinn fljótlega, er að hugsa um að fjárfesta í nýrri mublu....er svo hrifin af tungusófanum hennar Vallýjar svo að ég ætla að eignast einn svoleiðis...held að það sé alveg að verða kominn tími á fermingargjöfina mína...allavegana sem svona sjónvarpssófa. ´

Jæja, ætli sé ekki best að fara að koma sér í bælið fljótlega....geri ráð fyrir að verða vakin fyrir átta í fyrramálið...daman er frekar morgunhress :)

Reyni að láta ekki svona langan tíma líða fram að næstu færslu :S

Irmelin


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 20:40:25 / irmelin79

Back in the 90's

Mátti til með að "stela" þessu frá litlu sys

Back in the 90´s Þú ert 90´s kid ef þú: Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ] Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nintendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr ...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma

Annars er allt ágætt að frétta héðan af Nesinu, nóg að gera í vinnu og annað. Lofa því að setja inn færslu í kvöld eða á morgun.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
RSS tengill