...heitir nýjasti fjölskyldumeðlimurinn í Fagurhólstúninu (Grf)...Anna og Kjartan voru sem sagt að láta skíra dömuna sína...sem fékk þetta fallega nafn....og byrjar að sjálfsögðu á A!!! Nú er eins gott að dusta rykið af barnabæna kunnáttunni þar sem guðdæturnar eru orðnar 2....ég fékk sem sagt þann heiður að vera skírnarvottur ásamt systur hans Kjartans
Athöfnin var mjög notaleg, Arna Sigrún sat á gólfinu við skírnarfontinn og las upp úr sálmabókinni á meðan systir hennar var ausin vatni. Veislan var æðisleg....fullt af kökum og brauðréttum, eins gott að Gamlársdagur er ekki á morgun....það er séns að jafna sig á þessu áti, fyrir það næsta 
Áramótunum ætlum við að eyða saman, ég og "fjölskyldan", Heiða Lára og börn og Sigga Lilja og fjölskylda...telur líklega í kringum 13-15 manns
vorum öll saman í fyrra líka og gekk svona líka vel. Finnst hálf undarlegt að hugsa til þess að mamma og pabbi verði líklega ein um áramótin....Gulli frændi var hjá þeim í fyrra en fer líklega á Skagann þessi áramótin....nema að veðrið stríði honum eitthvað. En mamma á víst að vinna svo að ekki geta þau komið hingað...
segi þetta gott í bili, aldrei að vita nema það verði skellt inn eins og einni færslu í viðbót á árinu....who knowa 