well I'm not a therapist....
09.04.2007 21:21:22 / irmelin79

Komin í fullorðinna manna tölu :)

Jæja þá eru páskarnir búnir, skrapp norður á Akureyri á Skírdag og eyddi helginni með Vallý og Bjarna.  Eyddum helginni í að borða og liggja yfir sjónvarpinu,  skruppum reyndar líka í bíltúr inni í Eyjafjörð á föstudaginn með krökkunum hans Bjarna.  Fengum okkur ís í vín og fórum í Jólahúsið (átti vel við á föstudaginn langa ekki satt).  Fórum í bíó á fimmtudagskvöldið og sáum Wild Hogs...mæli eindregið með henni,  frábær skemmtun J   

Kom við heima á Laugarbakka á leiðinni vestur í dag og fékk steiktan fisk a la mamma, ágætt eftir allt kjötátið um helgina.  Hélt svo áfram vestur, leiðinda veður, slagveðursrignin og  rok L og ég sem var að vona að þeim tíma væri að ljúka.  Þegar ég svo var alveg að komast að Vegamótum haldið þið að ég hafi ekki verið stöðvuð af löggunni.....á 106 !!!!! Í fyrsta skipti eftir tíu ár með bílpróf.....þannig að nú er ég komin í fullorðinna manna tölu eins og einhver sagði einu sinni J Það sem mér fannst eiginlega verst  var að önnur löggan sem var í bílnum er snyrtifræðingur hérna í Grf. og ég á tíma hjá henni á morgun í litun og plokkun....:S en ég hlæ bara að þessu...allavegana núna.  Þegar hin löggan spurði mig hvort ég vildi eitthvað tjá mig um þetta brot...var ég fljót að neita og játaði bara á mig þetta brot.....hefði kannski átt að þegja og biðja um lögfræðing...hehehe.

En hvað um það, nú styttist óðum í væntanlega Danmerkurferð okkar á Leikskólanum Sólvöllum, aðeins 9 dagar (tæplega). Set inn nánari fréttir af þeirri ferð fljótlega, ætla að leggjast upp í sófa og horfa á Lost. 

Kv, Irmelin

Rakel skrifaði
Hæhæ, mér heyrist þú hafa eitt helginni á svipaðan hátt og við...matur og afslöppun og meiri matur:) Við reyndar náðum að skvísa inn einni sundferð og göngutúr:) Það verður gaman hjá þér í litun og plokkun tsk tsk tsk hehehe:) Vona að sektin verði ekki há...ég hef nú sloppið við þetta ennþá..hef reyndar verið stoppuð af löggunni en ekki fyrir of hraðan akstur...en ég held að ég sé að setja met í commentalengd þannig að ég ætla að hætta núna:)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
RSS tengill