Bæði Rakel og Inga Sigga klukkuðu mig svo:
1. 4 Störf sem ég hef unnið við:
Unglingavinnan á Laugarbakka, aðhlynningi á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga, sem dagmamma og leikskólakennari.
2. 4 Bíómyndir sem ég held uppá.
National Lampoon's christmas vacation, Dirty dancing, 10 things I hate about you (Ledger er bara svo sætur í þesari mynd
og Annie.
3. 4 Staðir sem ég hef búið á.
Laugarbakki, Akranes og Grundarfjörður (veit ekki hver 4 staðurinn verður, ef hann verður einhver)
4. 4 bestu ssjónvarpsþættirnir.
Friends, Grey’s Anatomy, Men in trees, Private practis
5. 4 matarkyns sem ég held uppá.
Alls konar kjúklingaréttir, hamborgarhryggur, kjöt í karrý a la mamma og humarsúpan hennar Önnu.
6. 4 Bækur sem ég held uppá.
Bækurnar hans Arnaldar, bækurnar hans Ævars Arnar, bækur Michael Connelly's (get ekki gert upp á milli bóka
)
7. 4 bloggarar sem ég klukkaði eru
Engir það er hvort sem er búið að klukka þá 
Annars er ágætt að frétta héðan, nóg að gera í skólanum já og vinnunni líka. Eins og það sé ekki nóg þá er ég líka í árshátíðarnefnd Grundarfjarðarbæjar svo að það er meira en nóg að gera.
Smá punktar frá sumrinu :
* Fékk sem sagt inn í Háskóla Íslands, Menntavísindasvið, er að byrja þar í framhaldsnámi í sérkennslu.
* Hélt upp á 70 ára afmælið hans pabba með nánustu fjölskyldumeðlimum í sumarbústað í Munaðarnesi, komum honum skemmtilega á óvart og skemmtum okkur konunglega....sumir enduðu óvart í heita pottinum....nefni engin nöfn 
* Fór á Whitesnake tónleikana...ekkert smá gaman, hef ekki farið á svona tónleika síðan Skunk Anansie voru hérna um árið...Rakel man eftir því 
* Svo skrapp ég í eins og eina sólarlandaferð til Rhodos...bara geggjað. Fór með Svanhildi, Sigga og börnum. Vorum þar í brakandi sól og blíðu í tvær vikur, 35-39 stiga hiti (fengum reyndar aðeins að kynnast 44 gráðum einn daginn...það var rosalegt
). Upplifðum meðal annars jarðskjálfta upp á 6,7...svona eftir á þá var það skemmtileg upplifun en get ekki sagt að okkur hafi fundist það meðan hann gekk yfir
Sem betur fer sluppu allir ómeiddir enda var þetta nokkurs konar bylgja sem gekk yfir eyjuna en ekki högg.
* Fékk Írisi Emblu í láni í tvær vikur þegar ég kom heim
það var bara gaman, á eftir að fá hana oftar í láni. Vorum hérna fyrir vestan og héldum bæjarhátíðina hátíðlega ásamt ca. 4000 manns, fórum svo til ömmu og afa á Laugarbakka og vorum þar í nokkra daga...í góðu yfirlæti.
* Svo tók "grár" hversdagsleikinn við... nei, nei... er bara búin að eyða haustinu í vinnunni og heima við lærdóm en svona verða næstu 2-3 árin ef allt gengur upp
í framhaldi af því verður svo ráðist í baráttu fyrir meiri launahækkun eftir að mastersnámi er lokið...heldur en er í boði núna. Þá verður fjármálakerfi Íslands vonandi risið upp úr þessu gili sem það situr fast í núna 
Er farin að lesa....
Irmelin